<!-- <body bgcolor="#000" marginwidth="0" marginheight="0" link="#004080" vlink="#004080" alink="#004080"> <b:section id="navbar" class="navbar" maxwidgets="1" showaddelement="no"> <b:widget type="Navbar" id="Navbar1" locked="yes"/> </b:section> <iframe src="http://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID=3439825&amp;blogName=Granda%C3%B0i+Vesturb%C3%A6ingurinn&amp;publishMode=PUBLISH_MODE_BLOGSPOT&amp;navbarType=TAN&amp;layoutType=CLASSIC&amp;homepageUrl=http%3A%2F%2Fjohat.blogspot.com%2F&amp;searchRoot=http%3A%2F%2Fjohat.blogspot.com%2Fsearch" marginwidth="0" marginheight="0" scrolling="no" frameborder="0" height="30px" width="100%" id="navbar-iframe" title="Blogger Navigation and Search"></iframe> <div id="space-for-ie"></div> -->

2962 Clubview Drive

Þessi fallega þriggja herbergja íbúð, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi í Raintree hverfinu í Ventura Orlando fæst leigð a góðu verði. Í henni eru allar nauðsynjar, meðal annars þvottavél,þurrkari og internettenging. Íbúðinni fylgir aðgangur að upphitaðri sameiginlegri sundlaug og heitum potti, íbúðin er í göngufæri frá klúbbhúsinu.

Íbúðin er staðsett í Raintree hluta Ventura, sem er lokað og vaktað hverfi allan sólarhringinn, þaðan er stutt í góðar matvöruverslanir (ca 5 min keyrsla).  


Ventura svæðið er mjög fjölskylduvænt og sannkölluð paradís fyrir þá sem stunda golf, en þar er frábær 18 holu golfvöllur, sem er með best hirtu völlunum á Orlando svæðinu. Ventura er nálægt öllum helstu skemmtigörðum Florida s.s. Disney World, Universal Studios, Wet’n Wild og Sea World.

Ventura svæðið er einnig nálægt alþjóðaflugvellinum í Orlando og 40 mínúta fjarlægð frá Sanford-flugvelli sem Icelandair lendir á. Ventura er stutt frá helstu hraðbrautum í Orlando, sem sé 436, 417 og 528 (Bee Line), en eftir þeim vegi er aðeins 45 min. akstur til Cocoa beach og Kennedy Space Center til austurs og 10 til 15 min. út á International Drive. Klúbbhúsið í Ventura hefur tekið miklum stakkaskiptum á seinni árum. Þar er nú feikigóð aðstaða, sundlaug, leikvöllur, tennisvöllur og veitingaþjónusta alla daga vikunnar. 19. holan, sem er veitingastaður í klúbbhúsinu, hefur reynst afar vinsæl meðal Íslendinga í Orlando, sem hittast þar gjarnan á hverjum miðvikudagseftirmiðdegi.